Main Header

LAGALEIT

PLÖTULEIT

Djúpríkið

Mál og Menning (2004)
Description

 

Höfundar: Bubbi Morthens og Robert Jackson

Íslensk þýðing: Silja Aðalsteinsdóttir
Myndskreyting: Halldór Baldursson

ISBN: 9979-3-2536-4

96 bls. Útgefandi: Mál og Menning 2004 
Útgefið af Meadowside sem Storlax (6. Október 2005)

Aðeins um bókina og höfunda 

Hér kveður Bubbi Morthens sér hljóðs á nýju sviði og skapar ásamt Robert Jackson og Halldóri Baldurssyni heillandi ævintýr um ferðalag laxanna Ugga og Unu með ættingjum sínum frá Norður-Íshafinu og í
heimahylinn á Íslandi.

Dimma nótt í vetrarlok kallar Stórlax á ættingja sína. Það er kominn tími til að leggja upp í ferðina miklu. Hún hefst djúpt í ísi lögðu Norður-Íshafinu og er heitið alla leið upp í heimahylinn - í ánni þar sem allir Hofsárlaxar voru eitt sinn lítil seiði. Uggi og Una eru að fara í ferðina miklu í fyrsta sinn. Þau hlakka til en kvíða líka fyrir. Þau hafa heyrt um allar hætturnar sem bíða þeirra á leiðinni og vita að margir úr hópnum munu ekki komast á leiðarenda.

Bubbi Morthens, einn ástsælasti tónlistarmaður landsins sýnir á sér nýja hlið með ritun barnabókarinnar Djúpríkið. Ekki er um algjöra frumraun að ræða, en Bubbi hefur áður skrifað barnabókina Rúmið hans Árna. Robert er meðritstjóri og einn af eigendur vikublaðsins The Reykjavik Grapevine. Hann hefur áður sent frá sér spennusöguna 69° North. Bubbi og Robert eru báðir ástríðufullir laxveiðimenn.
Halldór Baldursson hefur myndskreytt fjölda barnabóka, m.a. Sögurnar um Evu Klöru, Allir með strætó og Fíasól í fínum málum.

Djúpríkið er saga af miklum ævintýrum, baráttuþreki og samstöðu, nagandi ótta og dillandi kátínu. Sagt er frá af þekkingu en ekki síður aðdáun á laxinum og dugnaði hans. Bubbi Morthens og Robert Jackson skapa ógleymanlegar persónur úr íbúum Djúpríkisins sem birtast lesendum ljóslifandi í sérlega fallegum myndum Halldórs Baldurssonar.

English:

Storlax is a dramatic story of adventure, endurance and good humour in the face of adversity. It is a romantic account of one of the world’s most amazing migrations by one of the sea’s most remarkable fishes - the Atlantic Salmon.  Not since Watership Down has a book appeared which draws the reader into the animal kingdom, and then takes him beyond, keeping him transfixed with powerful characters and blistering narrative. As well as being a thrilling adventure story, Storlax also has a strong and relevant environmental message looking at the long term effects of salmon farming, river pollution and fisherman.  This important subplot encourages the reader to think about the about the plight of the Atlantic Salmon and the rivers in which they breed.

 

 

Bókarkápur

 \"storlax2\"  \"storlaxar1\"
 Ensk útgáfa Ensk útgáfa

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.