Höfundur: Bubbi Morthens
Ljósmyndir: Einar Falur Ingólfsson
Hönnun kápu og bókar: Jón Ásgeir Hreinsson
ISBN: 9789935418005
?? bls. Útgefandi: Salka forlag 2009
Laxá í Aðaldal geymir stóra laxa og mikla sögu. Margir kunnir veiðimenn hafa gengið þar um bakkana með von í brjósti um að krækja í "þann stóra".
Hjá sumum hafa draumarnir ræst, aðrir fara heim með löskuð hjörtu, en koma þó flestir fljótlega til baka fullir af veiðihug og bjartsýni. Slagæð dalsins, fóstran stóra, sem streymir þung og hæg milli gróðri vafinna bakka, hefur ekki aðeins aðdráttarafl vegna höfðingjanna sem í henni búa, heldur líka vegna umhverfisins sem á vart sinn líka hér á landi.
Ógleymanleg einstök saga um drottningu laxveiðiánna á Íslandi, prýdd stórkostlegum myndum eftir Einar Fal Ingólfsson, Guðmund frá Miðdal og fleiri laxveiðiáhugamenn.
DVD diskur með kvikmynd um sögu nesveiðanna fylgir bókinni.
,,Texti hér að ofan er fenginn frá Slaka Forlagi"
Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK?