Lag: Ego, texti: Bubbi Morthens
Þeir hringdu í morgun
sögðu að Lilla væri orðin óð.
Að hún biti fólk í hálsinn
drykki úr þeim allt blóð.
Hún hafði sagt hún gæti ekki dottið
hún hefði engan stað að detta á.
Hún sagðist breytast í leðurblöku
að hún flygi um loftin blá.
Læknirinn var miðaldra
augun í honum voru grá.
Hann djönkaði sig með morfíni
sagðist hafa unnið hér í fimmtán ár.
Þá órólegu geymdu á deild
sem var sérhönnuð fyrir þá.
Það átti að setja Lillu í raflost
hann bauð mér að horfa á.
Stórir strákar fá raflost…
Gangastúlkurnar hvæstu
og sýndu í sér tennurnar.
Þær skipuðu mér að fara í rúmið
sögðu: tími komin á pillurnar.
Ég sagði þeim að ég væri gestur
að ég væri á leiðinni heim.
Þær skelltu mér með látum í gólfið
sögðu svo: þú ert einn af þeim.
Á kvöldin kemur læknirinn
segist vera vinur minn.
Segir: þú verður að vera rólegur
þú æsir upp öll hin.
Segir að ég sé í tveggja ára meðferð
hann býður mig velkominn.
Segir að á morgun fái ég raflost
svo að ég verði eins og öll hin!
Stórir strákar fá raflost…
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
- Ego - Breyttir tímar (1982)
- Úr kvikmynd - Rokk í Reykjavík (1982)*
- Ýmsir - Á fullu (1982)
- Ýmsir - Með lögum skal land bygga (1985)
- Ýmsir - Nælur (1998)
- Ego - Frá upphafi til enda (2001)
- Ýmsir - Óskalögin 6 (2002)
- Bubbi ; Ego - 06.06.06 (2006)*
- Egó - Breyttir tímar (2007)*
- Ýmsir - 100 Íslensk 80's lög (2007)
- Ýmsir - 100 bestu lög lýðveldisins (2008)
- Bubbi - Sögur af ást, landi og þjóð (2010)
Í flutningi annara á eftirtöldum útgáfum
- Sinfóníuhljómsveit Íslands - Í takt við tímann (1986)