Lag og texti: Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson
Lifðu hátt, láttu smátt
laus við þras í fullri sátt.
Lærðu að hugsa en tala lágt
lífið er alt sem þú átt.
Draumarnir þeir vaka yfir þér í nótt
vitund þín er opin, hér inni er kyrrt og rótt.
Þótt augun nemi ljósið, sérðu ekki neitt
þótt eyrun nemi hljóðið, þú getur engu breytt.
Lifðu hátt, láttu smátt
laus við þras í fullri sátt.
Lærðu að hugsa en tala lágt
lífið er alt sem þú átt.
Myrkrið það drekkur þitt unga dökka blóð.
Þeir dauðu lifa, um nætur leggja slóð.
Í gegnum þinn huga í orku sína ná
milli svefns og vöku er þá hægt að sjá.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum