Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Blús fyrir Ingu

 

Bubbi - Plágan
Blágan 1981

Lag og texti: Bubbi Morthens

Þreyttur er ég að morgni dags.
Þrái margt en engum segi.
Reykmettað loft, rokkað til sólarlags
blindaður af nýjum degi.

Hversu lengi hef ég beðið, beðið þess dags
að þú hvíslaðir mér í eyra
orð sem ég hef þráð, frá morgni til sólarlags
orð sem mér einum ætluð eru að heyra.

Allar þær nætur sem ég hef verið án þín
vaknað upp firrtur og þreyttur.
Inn um hótelglugga bleikur máninn skín
ég elska þig þó tíminn sé breyttur.

Þegar ég vakna og horfi á þig
þú minnir mig á vorið.
Mér líður eins og blómi, er finnur sól snerta sig
eða lamb nýborið.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.