Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Grein um 3 heimar

Ný plata með Bubba Morthens kemur út í dag:
Sækir texta í fréttaþætti sjónvarpsins

Image
DV / Grímur Bjarnason

„Með nafni plötunnar er ég í senn að skírskota til þess að manneskjan lifir í þremur heimum og einnig þeirra tónlistarlegu stílbrota sem er að finna á henni," segir Bubbi Morthens þegar hann er beðinn að skýra út nafnið á nýjustu plötu sinni, Þrir heimar, sem kemur út í dag.

„Ég held að hér sé um klassíska Bubba-plötu að ræða þótt vinnubrögðin við hana hafi verið öðruvísi en áður," heldur hann áfram.
„Hún er unnin meira og minna undir hip hop áhrifum frá New York þótt þau blasi svo sem ekkert við í endanlegu útkomunni. Upptökustjórinn vildi ekki láta mig rappa. Sagði að ég væri fyrst og fremst melódíumaður og að hún þyrfti þvi að fá að njóta sín."

Upptökustjórinn er Svíinn Christian Falk og er Þrír heimar fjórða platan sem hann vinnur með Bubba. „Mig langaði einfaldlega í nýjan hljóm sem ég vissi að íslenskir tónlistarmenn voru ekki með. Ég vissi að Christian var að vinna plötu með Neneh Cherry og hringdi í hann. Sem betur fer hittist svo á að hann átti dauðan tima og við unnum plötuna saman með Eyþór Gunnarsson sem þriðja mann. Síðan voru nokkrir til viðbótar kallaðir til. Ellen Kristjánsdóttir raddar til dæmis með mér og KK tekur með mér lagið."

Fréttafíkill

Textar Bubba skipta miklu máli eins og fyrri daginn. Sungið er um allt milli himins og jarðar. Þó segist hann byggja þá minna á persónulegri reynslu en oft áður.

„Ég er fréttafíkill," segir hann og gýtur augunum á skjáinn þar sem fréttaþulur BBC er í óðaönn að skýra frá friðarverðlaunum Nóbels. „Textann við Bleika þríhynúnga sótti ég til dæmis í fréttatengdan þátt hjá BBC þar sem verið var að fjalla um homma og lesbíur í fangabúðum þriðja ríkisins. Þetta fólk var merkt með þremur bleikum þríhyrningum og það sætti hörmulegri meðferð hjá kvölurum sínum áður en endi var bundinn á líf þess. Textinn við Atvinnuleysið er komið til að fara er til dæmis úr frétt í Ríkissjónvarpinu," heldur hann áfram. „Þar var fjallað um félagslega stöðu atvinnulausra og birtar makalausar yfirlýsingar stjórnarliða um þá. Þar var mikil steypa á ferð. Svo ég nefni eitt dæmi til viðbótar varð textinn við Maður án tungumáls til þegar ég horfði á kór Verslunarskólans hjá Hemma Gunn. Krakkarnir komu þarna fram með brot úr Jesus Christ Superstar og sungu það á ensku þrátt fyrir að tvær íslenskar þýðingar á verkinu séu til. Mér varð svo mikið um að ég stökk til og hripaði hjá mér nokkur brot sem síðan urðu að þessum texta. Ég var alveg gapandi yfir móralnum hjá þessu unga fólki." íslenskir textar eru Bubba augsýnilega hjartans mál. „Fólk talar ofl um að enska sé mál rokksins," segii hann. „Hvers vegna er gríska þá ekki mál bókarinnar? Eiga rithöfundar ekki að skrifa allar sínar bækur á grísku ef við notum sömu röksemdafærslu? Nei, ég óttast að ansi margir af þeim sem syngja á ensku hafi frá litlu að segja og reyni að breiða yfir það með því að nota erlent tungumál."

Endað á Litla-Hrauni

Þremur heimum verður fylgt eftir með fimmtíu tónleikum víðs vegar um land á næstu vikum. Bubbi verður einn með gítarinn og íhugar meira að segja að efna til þriggja klukkustunda útgáfutónleika í Borgarleikhúsinu. „Svo enda ég á Litla Hrauni á áðfangadag eins og venjulega," segir hann. „Það eru loka tónleikarnir fyrir jól." Hann er ekki alveg viss um hvernig næsta plata hans verður - og þó.

„Ég hef verið að semja gleði- og drykkjuvísur Bubba að undanförnu og er kominn með efni á svo sem hálfa plötu," segir hann. „í þeim syng ég um ýmsa eftirminnilega karaktera sem ég hef sukkað með á undanförnum árum. Þetta eru litlar sögur af skemmtilegu fólki eins og til dæmis Magga vini mínum sem gat ekki gert það nema í leigubíl. Ég reyni að hafa húmor og kæruleysi í þessum vísum, svona í anda Ása í Bæ og Bellmanns. Mig langar líka að vinna meira í reggae-takti.

Um GCD er lítið hægt að segja að svo komnu máli. Óvíst hvað gerist með þá hljómsveit. Við eigum að vísu eftir að skila einni plötu og þar sem við lentum í óvæntum fjárhagserfiðleikum með aðra plötuna er aldrei að vita nema þeir verði kveikjan að því að við ráðumst í eina enn."

DV 20 október 1994

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.