Lag og texti: Bubbi Morthens
Biðraðir og bomsur, brosum ástin mín
Lopapeysa og saltkjöt, rómantíkin skín
úr augum okkar ljúfan við vatn og kertaljós
grænar Orabaunir kaldar uppúr dós.
Biðraðir og bomsur.
Biðraðir og bomsur.
Saumavél um nætur hjalar undurlétt.
Höftin herða tökin furðu hratt og þétt.
Krónan undir rúmi vill í börnin þín ná.
Hrínandi þau vakna í framan rauð og blá.
Biðraðir og bomsur
Biðraðir og bomsur
Bankinn mundar kutann opnar á þér æð.
Gjaldþrotin þau ná orðið uppá tíundu hæð.
Hann drekkur úr þér blóðið hirðir börnin þín.
Brosandi hann sendir síðan beint í þrældóminn.
Biðraðir og bomsur.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





