Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Skipstjóravalsinn

Lag og texti: Bubbi Morthens

Bubbi - Þorpið (2012)
Þorpið (2012)

Hvenær var það þegar settist sólin
á sjóinn og geislarnir kysstu hólinn
Hún sat á öldunni langt frá landi
spor okkar lágu í svörtum sandi
Kossinn var aldrei sætari en þá

Þorpið brosti, bauð góðan daginn
ungum elskundum sem sátu við sæinn
Ég get svarið það var eins og í gær
Enginn kvóti, öll svik voru fjær
Kossinn var aldrei sætari en þá

Og dansinn dunaði
júlínóttin ilmaði
af birkinu og þú
í fangi mér

Skiluðum okkar, ástin mín
öll börnin menntuð, vel lukkuð og fín
lífið sem mig dreymdi alltaf um
var ástin með þér og börnunum
Kossinn var aldrei sætari en þá

Og dansinn dunaði
júlínóttin ilmaði
af birkinu og þú
í fangi mér

Ég var sjómaður, þú varst sjómannskona
í ellinni er staðan okkar svona
Lífið hefur leikið við okkur bæði
Án þín hefði ég aldrei vitað hvar ég stæði
Ó ástin mín, ó ástin mín
koss þinn sætur ennþá er


Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

 

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.