Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Fastur á gaddavír

 

Bubbi - Ný spor
Ný spor 1984

Lag og texti: Bubbi Morthens

Mig dreymdi þig í nótt
syfjuðum gómum þuklaði koddann.
Þegar ég vaknaði fann ég aðeins mitt eigið höfuðfar.
Ég sakna hlýjunnar í köldu myrkrinu
frá mjúkum líkama þínum.
Ég sakna orðanna
sem ég veit þú mundir hvísla til mín.

Tómið sem reis upp á milli okkar
virðist aldrei hafa verið til.
Samt líður mér eins og þresti
föstum á gaddavír.
Þeir segja að þú brosir sjaldan
að hjarta þitt sé falið.
Að fegurð þín sé eins og jökullinn sem að hafinu snýr.
En ég einn veit
að í augunum brosið býr.
Samt líður mér eins og þresti
föstum á gaddavír.

Ég sakna þess
að hafa aldrei sagt þér hversu sterkt ég virði þig
að allar þær fórnir sem þú færðir
voru færðar af ást til mín.
En nú loks
þegar ég skil það
líður mér eins og þresti
föstum á gaddavír.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.