Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Ég hata þetta bít

 

Bubbi - Ný spor
Ný spor 1984

Lag og texti: Bubbi Morthens 

Halló, halló
viltu dansa?
Gerðu það
dansaðu við mig
þetta er skemmtilegt lag
dansaðu, gerðu það.

Ég hata diskó, þoli ekki þetta bít
og ég er stífur, þú ert laus
við dönsum diskó á sömu braut.

Ég hata diskó, hef slappan skrokk í það
samt hef ég rithma; hvítan rithma.
Þú hefur rithma, slefandi rænulaus
þú hefur rithma, slefandi rænulaus.

Eins og snákur
læðist ég
að bakhluta þínum.
Fötin eru frá Sautján.

Ég hata diskó, þú elskar það
ég hata diskó, því vantar lag
spegill, spegill þær taka eftir mér
spegill, spegill þær horfa á fæturna á mér.

Ég véla þær, ég véla þær.

Ég hata diskó, ríð í takt við Lou Reed
ég hata diskó, þoli ekki þetta bít
þær trúa mér ekki.
En ég á smá ljósashow á kinninni á mér
ég hata þetta bít.

Humphrey Bogart á mánudögum
Sylvester Stallone á laugardögum
Clark Gable á miðvikudögum
og jafnvel smá Travolta á fimmtudögum.
Óaðfinnanlegt kyntröll á föstudögum.

Ég hata diskó, þoli ekki þetta bít
ég hata diskó, ríð í takt við Lou Reed.
Þú hefur rithma, slefandi, rænulaus.
Þú hefur rithma, slefandi, rænulaus.

Dansaðu, dansaðu, dansaðu…..

þoli ekki þetta bít
ég hata
ég hata diskó, diskó, diskó
þoli ekki þetta bít
hata diskó, ég ríð í takt við Lou Reed.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.