Lag og texti: Bibbi Morthens
Ég gekk inn á stað
sem var fullur af fólki
horfði á andlit sem runnu í eitt.
Skynjun mín var sterkari
en allur sá ótti
sem fær flesta
til að gera ekki neitt.
Nóttin fór í það
að við lékum okkur að orðum
sem urðu lifandi ef sögð voru rétt.
Sum þurftu hjálp
en við sátum - horfðum
spurðum aldrei: Hvað er rangt
hvað er rétt?
Systir minna auðmýktu bræðra
opnaðu hlið þitt í nótt.
Systir minna auðmýktu bræðra
opnaðu faðm þinn í nótt.
Ég spurði hana hvort hún
væri hin eilífa æska
sem allir blindir leituðu að.
Hvort hún vissi
hvar örlög mín væri að finna
því fortíðina burtu ég gaf.
Hún brosti
og augun urðu dimm og þung.
Sagði: Ljúfurinn, ég er örlög þín.
Nóttin mun þrá æskuna meðan
æskan verður ung.
En þú ert dæmdur til að vera
skugginn minn.
Systir minna auðmýktu bræðra
opnaðu faðm þitt í nótt.
Systir minna auðmýktu bræðra
opnaðu hlið þín í nótt.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





