Lag og texti: Bubbi Morthens
Í dögun sefur spegill hafsins, kjölur býr til sár.
Skutullinn býður komu hvalsins, klýfur loftið kaldur nár.
Dauðann mun hann líta, því augu hans þrá að sjá
hvort hafið sé jafn fallegt og fjöllin jafn tignarleg
- ísröndin jafn blá.
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Hvað heldur þú, er nauðsynlegt að skjóta þá?
Seðlar stjórna lífinu auma, hvíslar brotin rödd.
Hver trúir á drauma, trúir á draumsins heimsku rödd?
Þegar sólin kyssir fjöllin, þú sérð þá koma inn.
Við síðuna liggja tröllin og í rákinni brotinn spegillinn.
Í dögun sefur spegill hafsins, kjölur býr til sár.
Skutullinn býður komu hvalsins, klýfur loftið kaldur nár.
Dauðann mun hann líta, því augu hans þrá að sjá
hvort hafið sé jafn fallegt og fjöllin jafn tignarleg
- ísröndin jafn blá.
Vinsældalistar
#3. sæti DV - Rás 2 (19.12.1986) 8. vikur á topp 10
#6. sæti DV - Bylgjan (9.1.1987) 2. vikur á topp 10
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





