Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Síðasta blómið

 

Utangarðsmenn - +I upphafi skyldi endirnn skoða
Í upphafi skyldi endirnn skoða 1981

Lag: Utangarðsmenn, texti James Thurber, þýðing: Magnús Ásgeirsson

NÓTA, frá plötunni Línudans: Textinn er þýðing Magnúsar Ásgeirssonar á ljóði eftir James Thurber. Ljóðið á erindi til okkar allra, lagið er eftir Utangarðmenn. 

Undir XII. alheimsfrið
(eins og fólk mun kannast við).

eftir blóðug öfgaspor
endursteyptist menning vor.

Heimsbyyg öll var eydd að grunni.
Uppi stóð ei tér né runni.

Bældir heimsins blómsturgarðar.
Brotnir heimsins minnisvarðar.

Lægra en dýr með loðinn bjór
lagðist mannkind smá og stór

Horfin von, með hlýðni þrotna,
hundar sviku lánadrottna.

Sótti á bágstatt mannmyn margur
meinkvikinda stefnivargur.

Músik-, bóka- og myndalaus
manneskjan sat með kindahaus,
gleði-, dáða- og girndalaus.

Glötunin virtist þindarlaus…

Pótentátar XII. stríðsins,
tórandi enn á meðal lýðsins,
mundu orðin ekki par
út af hverju stríðið var.

Hvort til annars drós og drengur
dreymdum augum renndu ei lengur,
heldur gláptu öndverð á:
Ástin sjálf var lögzt í dá…

Ein síns liðs á víðavangi
vorkvöld eitt var telpa á gangi
og hún fann á sínu sveimi:

Síðasta blóm í heimi.

Heim hú stökk þá sögu að segja
að síðasta blómið væri að deyja.

Ungum pilti út í haga
einum fannst það markverð saga.

Saman forðuðu sveinn og meyja
síðasta blóminu frá að deyja.
Í heimsókn komu, að heilsa því,
hunangsfluga og kólibrí.

Bráðum urðu blómin tvö
og blómintvö að fjórum,
fimm, sex, sjö… …
og síðast breiðum stórum.

Laufgast tók hvert tré og lundur.
(Telpan fékk sér snyrtingu).

Piltinum fanns hún alheims undur.
Ástin var í birtingu.

Börnin tóku að hoppa og hlæja
hnellin, keik og létt á brá.

Hundar snéru heim til bæja
(hefði verið að ræða um þá).

Ungi maðurinn framtaksfús
fór að byggja úr steinum hús,

og senn fóru allir að hlaða og hýsa,
og heimsins byggðir að endurrísa,

og söngvar lífsins upphófust menn,

og fram komu fiðlarar
og fjölbragðamágusar
og skraddarar og skóarar
og skáld og listamenn,
höggmeistarar, hugvitsmenn
og hermenn!

Og aftur komu ofurstar
og aftur risu upp kapteinar
og majorar og marskálkar
og mannkynslausnarar!

Niður í dölum, fram til fjalla
fólk sér dreifði um veröld alla.

En fyrr en varði fjallahyggja
fór að sækja á dalabyggja,

og þeir sem áttu heima á hæðum
hugan sveigðu að lægri gæðum.

Lýðinn ærðu í lygaskaki
lausnarar, með guð að baki,

unz eftir skamm hríð
hófst alheimsstríð.

Í stríði því var öllu eytt

ekki neitt
lifði af þann lokadóm,

nema einn piltur

nema ein telpa

nema eitt lítið blóm

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Athugasemd

Þó lagið hafi fengið inn á sólósafnplötuna Línudans sem er merkt Bubba er þar um sömu upptöku að ræða og Utangarðmenn sendu frá sér á safnplötunni 1981. Raunflytjendur eru því Utangarðsmenn. Til viðbótar og til gamans má geta þess að Kristín Ólafsdóttir söng þennan texta einnig inn á plötu sína Á morgun (1985) en þá við annað lag.

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.