Lag: Bergþór Morthens, Rúnar Erlingsson, texti: Bubbi Morthens
Upp í risinu bíða spámenn fyrri tíma
komu heimsins í stóískri ró.
Dagurinn er svo lengi að líða
sköpunin vaknar í komplexaðri glóð.
Þannig varð nýlistin til
þannig varð nýlistin til.
Misskilinn listamaður skilur teiknimyndahetjurnar
þær koma til með að að skilja hann.
Sér það sem augun sjá ekki.
Á kvöldin í rökkrinu skiptir um ham.
Veislur þeirra snúast um hver er mest öndergránd
hver hefur fallegasta naflann.
Öll list fyrir utan bygginguna er of borgaraleg
þú átt ekki séns hjá þeim.
Þau reyna að drekkja sorgum sínum.
Þau vita ekki að þær eru syndar.
Þau trúa því sem augun sjá
vita ekki, ..lygarar, lygarar…..
Spegill listarinnar brotnaði.
Brotin dreifðust yfir heimsbyggðina.
Tóku sér síðan bólfestu í augum útvaldra,
sem síðan sáu heiminn í öðru ljósi.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum