Lag og texti: Bubbi Morthens
Ég vaki einn í auðu húsi
aðeins skuggar búa hér.
Út um gluggann ég gægist
gatan auð sýnist mér.
Tómir bílar, brotnar rúður
borgin sefur eins og er.
Vökuþreyttur ég þykist vita
að þrá mín tengist þér.
Ég ætla að fá þína sál
ljúfan.
Sef um daga, dreymir um nætur
dreymir um það sem áður var.
Kafa svefninn, kanna hugann
kannski finn ég eitthvað þar
sem hjálpað gæti mér að muna
og minnast þín í hjarta mér.
Nóttin langa lág svo hvíslar
leiðist þér að vaka með mér?
Stundum virðist viljinn koma
viljinn til að gleyma því
að þú hafir glatt um ganga
gefið kossa, heit og hlý.
Ég bíð þín enn í auðu húsi
ekkert nema skuggar gægist
gatan auð sýnist mér.
Ég ætla að fá þína sál
ljúfan.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum