Lag og texti: Bubbi Morthens
Ráðherrann er lygari, lævís og flár
loforð hans duga í hundrað ár.
Geymir laxa í baðinu og börnin eru sár
í boðum eru þau óhrein.
Heimskur eins og þurs, þykkur eins og fíll
þrátt fyrir það er yfir honum stíll.
Hann veit hvað er mótorhjól, hann veit hvað er bíll
og hann veit að börnin eru óhrein.
Því hann ræktar laxa í baðinu hjá sér
bráðum mun hann rækta þá heima hjá þér
og þeir stökkva upp úr klóinu, karlinn dag einn hér
og kvarta: Börnin eru óhrein!
Ráðherrann er brandari og börnin hrópa vá!
Best þykir hann njóta sín í stórri djúpri á.
Og bankarnir þeir elsk’ann og allir það nú sjá
og ennþá eru börnin óhrein.
Ráðherrann er heilagur, hvað heldur þú?
Hausinn hans er dýrgripur, segir gömul trú.
Og hann byggir í stofunni laxastiga og brú.
Stórkostlegt hvað börnin eru óhrein.
Hann fékk í vöggugjöf vissulega það
en ég er ekki viss hvað það heitir, svo að
ég hringi strax í börnin og býð þeim í bað
og ég býst við þau komi óhrein.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





