Lag og texti: Bubbi Morthens
Þau bíða vokandi sem villidýr um nætur
með vonleysi í augum og uppslitnar rætur.
Þar sem óttinn býr í bjóstum manna
með blóðbragð á tungu milli gulra tanna
þar sem neongrænir dagar dragnast á fætur.
Jakkaklæddir menn
kúra bak við borð
með græna ljósið frá tölvunni
éta tölvuprentuð orð.
Hér fórna menn öllu fyrir nótt á nálaroddi
þeirra náttfleti er gatan og víman þeirra koddi.
Hér er sprautan hamingja hjartans auða
og hlekkir lífsins fylgja þeim til dauða.
Hér nærist eymdin á eigin vaxtarbroddi.
Hér má sjá hús sem hýsa skugga þeirra manna
sem heiminum stjórna milli rándýrshvítra tanna
sem vandanum eyða með einu striki
og allur þeirra pappír síðan safnar bara ryki
og flokksvélin lofar að láta málið kanna.
Þegar tíminn er enginn til að elska eða brosa
og hver einasti þingmaður hefur nefið hans Gosa
og fólkið vinnur myrkranna á milli
og margtuggnar klisjur keppa um fjöldans hylli
þá halda menn að víman muni vandamálin losa.
Vinsældalistar
#8. sæti DV - Vinsældalisti Íslands (11.12.1992) 3. vikur á topp 10, 6. vikur á topp 20
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





