Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Leiðin til San Diego

 

Bubbi - Lífið er ljúft
Lífið er ljúft 1993

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ég veit un nætur sem taka öllum töfrum fram
og trú mín á ævintýrið lifir
undir ágústsólinni er engan skugga að finna.
Ættum við að keyra strax yfir
landamærin þar sem fótspor finnast ennþá
falin milli rústanna ásamt bergmáli okkar beggja
á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
og sólin hvítt leiftur milli hálfhrundra veggja.

Ég þekki konu sem tekur öllum töfrum fram
og ég trúi á hana eins og lífið
það er tíbrá yfir veginum og veðrið er ljúft
  og vindurinn hvíslar: Svífið,
fljúgið yfir draumana sem engan dreymir lengur,
dansiði við álfana sem fæstir fá að sjá.
Á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
og við hlið mér er kona með augun svo ótrúlega blá.

Ég þekki manninn sem þráir þig ofar öllu
og ást hans er kyrrlát, hljóð.
Undir fjólubláum himni er hlátur hans þýður
og hafið er bláhvítt ljóð.
Þar sem vegurinn endar tekur eyðimörkin við.
Efst á hóli rauðum má rústir ennþá sjá.
Á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
og hjarta mitt fagnar þessari aldargömlu þrá.

Í þessari víðáttu af sandi kýs sólin að halla sér
og sögu okkar finnum við þar.
Bráðum koma skuggar þess liðna og leita
að lífinu sem eitt sinn var.
Það eru til nætur sem taka öllum töfrum fram
og ég tíni stjörnur úr hárinu þínu síða.
Á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt.
Á malbikinu er tíminn stundum lengi að líða.


Vinsældalistar
#13. sæti DV - Íslenski listinn (26.1.1994) 3. vikur á topp 30 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.