Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Við tvö

 

Bubbi - Lífið er ljúft
Lífið er ljúft 1993

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ég mæti þér í myrkrinu
með munninn í augna stað.
Með fingurgómunum giska ég
gætilega á það
að svarið sé söngurinn
sem sunginn verður í nótt
og uppskeran sé algleymið
sem aldrei verður sótt
á akur þeirra ástlausu
þar sem enginn er að sá
en við tvö eigum hvort annað
og alla þessa þrá.

Í brjósti mínu bergmálið
býður þér að ganga inn
og í dimmrauðu rökkrinu
eru rósir lykillinn
sem opnar einu dyrnar
sem enga höfðu skrá
og með vörunum þú vekur upp
í vöðvum heita þrá.
Og á akri þeirra ástlausu
uppskeran hún brást
en við tvö eigum hvort annað
og alla þessa ást.

Sjáðu hvernig sólin rís
úr sjónum, ljúfa mín
með bláhvítt bros er kallast dagur
og baðar fjöllin sín.
Við horfum á höfnina vakna
hlustum á götunnar óm
berast inn um opinn gluggann
með sinn æsandi dimma róm.
Og á akri þeirra ástlausu
er enga gleði að sjá
en við tvö eigum eldinn heita
sem ástin lifir á.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.