Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Atvinnuleysið er komið til að fara

 

Bubbi - 3 heimar
3 heimar 1994

Lag og texti: Bubbi Morthens

Maður án vinnu er vansæll maður
vinnulausi maður hvar er þinn staður?
Þingmenn rembast sem rjúpa við staurinn
og reyna að sýna í þetta fór aurinn.
Málið sem þeir tala tölvur aðeins skilja
tómleika spekinnar er erfitt að hylja.
Hulda spann og hjartað brann
atvinnuleysið telpan fann.

Kerfið getur ekki sinnt með sóma
sínu eigin fólki og orð þess hljóma:
Allir þurfa eitthvað niður að skera
atvinnuleysið er komið til að vera.
Þá skulum við allir einum rómi svara:
Atvinnuleysið er komið til að fara.
Hulda spann og hjartað brann
atvinnuleysið brýtur mann.

Maður þarf að borga brauð sitt og mjólk
bakvið tölur og styrki er lifandi fólk.
Ef ekki er hægt að tryggja fólki lágmarks kjör
er tími kominn á að finna ný svör.
Kerfið hefur brugðist og borgunin er sú
að brotin heimili misst hafa trú.
Hulda spann og hjartað brann
enga vinnu telpan fann.

Spilling og svínarí í felum inni í flokkum
fagurt gala veiðimenn í öllum flokkum.
Þú mátt vera bankastjóri stóllinn er þinn
ég stjórna öllu og svo er það hinn.
Hann vill verða sendiherra sendum hann af stað
alþýðan sér aldrei hvað er að.
Hulda spann og hjartað brann
loksins telpan vinnu fann.

Kvótaleysi bjargleysi heilsuleysi hljómar
getuleysi ráðaleysi svefnleysi ómar
úr kjöftum þessara manna myrkrið streymir
mikið vildi ég vita hvað þingmanninn dreymir
fyrir vestan er fólkið farið að brýna stálið
finnurðu ekki hitann? þetta er alþýðubálið
Hulda spann og hjartað brann
Hulda er efni í byltingarmann.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.