Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Ansa mér móðir

Bubbi og Guðmundur Pétursson - Bellman
Bellman 2000

Lag og texti: Carl Michael Bellman, þýðing: Jón Helgason

(23. pisitill Fredmans)

Ansa mér móðir, því æddir þú forðum
upp í til bónda þíns?
Eftir það rann í ófarnaðar skorður
ævi veslings míns.
Þinn girndareldur
þraut minni veldur
þungt er hvert mitt stig.
Eftir þinn trylling
á þig seig stilling
í þér barstu mig.
Hefði þá betur lás
hangið þér við gás.

Svei ykkar rúmi, svei hverju orði
sögðu í þessum stað
ellegar, sé ég orðinn til á borði
aldrei standi það!
Svei þeim er iðinn
sagaði viðinn
svo úr varð ból!
Svei þeim sem undu
saman og fundu
sínum leik þar skjól!
Teygði fúsan til
tálfullt gentuspil.

Foreldrum á ég fátt gott að inna
fussa við þeirra tryggð
þar sem ræsið lagstur lít ég minna
larfa viðurstyggð.
Skakkur er fótur
skógarmur ljótur
skyrtan öskustó!
Lítt fær mér hlúið
lasið og lúið
lambskinnsparruks hró
Klægjar lúinn kropp
kipptu’ í mig! híf-opp!

Sjá hendur mínar horaðar, kroppnar
hristast þær til og frá
öngvum til gagns þær lafa niður loppnar
líkt og visin strá.
Ásýnd mín bliknar
augnstyrkur viknar
innra fjör er misst.
Tungan í hafti
týnt hefur krafti
tapað söngsins list.
Ung batt hún í sinn óð
ástir, vín og fljóð.

Ljúft væri að heyra heilnæman safa
hellast í tóma skál!
Heiðin er trú mín, hyllir vínsins gjafa
hjarta, tunga, mál
Drykkfeldur, snauður
enginn minn auður
utan kverk mín þyrst.
Hennar ég gæti
hana ég væti
hvar sem til mín spyrst
þríf ég mitt þráða ker
þá úr heimi fer.

Hringlar í lykklum, hleypt er frá gluggum
hypjar sig fólk á kreik.
Himininn glaðnar, hinstum sveipuð skuggum
hverfur stjarnan bleik.
Turnspírur skína
tekur að hlýna
tónar hani gal.
Enn ekki drepinn
eygi ég þrepin
o’ní Bakkus sal
Ill er nú úti nótt
inn með pitlu fljótt!

Aukast nú kraftar.Ok minna myrða
óðfluga gerist létt.
Fljótlega finn ég limi mína stirða
liðkast við hvern skvett.
Svellur mér móður
sit ég nú rjóður
sál mín keik og rökk.
Faðir og móna
fyrirmynd hjóna
hafið heila þökk!
Eitt staup þar ég víst enn
ónei, tvö í senn.

Heill þeim sem forðum lét hjónarúm smíða
hans reyndist iðja þörf!
Heill ykkur tveim sem áköf stigin í það
unnuð nytsöm störf!
Faðir minn gamli
fjörkall í bramli
furða hvað þú gast.
Mættum við finnast
mundum við kynnast
mjöðin teyga fast.
Yrðum við ugglaust dús
eftir fyrstu krús.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.