Lag og texti: Bubbi Morthens
Skipin sigla suður
sumarið bíður þar
fólkið er farið burt
að finna hið rétta svar.
Hinum megin við hafið
í draumum fólksins falið.
er það að finna en enginn veit hvar.
Það er aðeins ein, það er aðeins ein
það er aðeins ein, það ert þú.
Sumir sáu drauminn
sigla hin dökku höf
þar sem villuljósin lýsa
látnum sína gröf.
En skipið okkar bíður
það er aðeins tíminn sem líður
og veldur þessari leiðu töf.
Ef ég hefði vængi
þá væri ég ekki hér.
Ég vildi geta flogið
burt í fangið á þér
þangað sem dagarnir fara
þar sem augu tímans stara
og ég mundi svara
þessi stúlka er með mér.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





