Lag og texti: Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson
Það er veggur svo þykkur sem umlykur allt
aldrei nær ljósið að falla á grjótið kalt.
Þeir ríku verða ríkari og strjúka feitan kvið
reyndu ekki að skilja það sem engum kemur við.
En ég sé ljósið
ég sé ljósið
En ég sé ljósið
ég sé ljósið.
Það eru fjölskyldur svo sterkar sem umlykja allt
ísköld græðgin stjórnar öllu hjá þeim kalt.
Þjófur þeir kalla ef þú stelur nógu smátt
krýna þig sem kóng ef allt er stolið sem þú átt.
Lögmálið er þeirra
lögmálið er þeirra
lögmálið er þeirra
lögmálið er þeirra.
Það er flugfélag á Fróni sem umlykur allt
öll samkeppni er drepin niður yfirvegað, kalt.
Það var skipafélag á Íslandi sem reyndi hvað það gat
kolkrabbinn hann át það og það er ekkert plat.
Vinsældalistar
#16. sæti DV - Íslenski listinn (16.5.1995) 5. vikur á topp 40
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





