Lag og texti: Bubbi Morthens
Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið
og halda út á veginn saman og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gamall og ganga lífsins veg
með þér er líf mitt ríkara - með þér er ég bara ég.
Menn segja ég sé breyttur og syngi um börnin og þig
ég syng um það sem skiptir máli aðeins fyrir mig.
Eitt mátt þú vita - ég elska þig meira en lífið sjálft
ég trúi án þín mitt líf væri hvorki heilt né hálft
Með þér er vorið yndislegt
og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
koss og stök rós.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
- Bubbi - Trúir þú á engla (1997)
- Bubbi - Sögur 1990-2000 (2000)
- Bubbi Sögur af ást landi og þjóð 1980 - 2010 (2010)
Í flutningi annara á eftirtöldum útgáfum
- Ýmsir ; Ragnheiður Gröndal - Íslensk ástarlög (2006)
- Ragnheiður Gröndal - Með þér (SD á tónlist.is, 2006)
- Ýmsir ; Ragnheiður Gröndal - Ballöður (2007)
- Ýmsir ; Ragnheiður Gröndal - 100 Íslenskar ballöður (2009)
- Ýmsir ; Ragnheiður Gröndal - Það er bara þú 38 lög um ástina (2011)
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





