Lag og texti: Bubbi Morthens
Það er sumar og sólin er gjafmild
situr hlæjandi í gulum kjól.
Ilmandi blóðberg svæfir hugann
ég bíð þín upp á grænum hól.
Við vatnið eru börnin að busla
brosandi í síli að reyna að ná.
Ég sé þig ganga upp brekkuna bröttu
blóm að lesa - falleg að sjá.
Brosin sem í dag fylltu þennan kofa
eru núna draumar barna sem sofa.
Þennan dag sem á enda er að renna
vil ég lofa, vil ég lofa, vil ég lofa
vil ég lofa, vil ég lofa, vil ég lofa
vil ég lofa, vil ég lofa, vil ég lofa
og þig fallegust kvenna.
Ágúst með sitt mjúka myrkur
er mánuðurinn sem á að lúra
við olíuljós og letileg kvöldin
og lesa með þér og kúra.
Frá trjánum skríða mjúkir skuggar
skynja þeir líka þessi skil?
Að lífið er aðeins dagurinn í dag
og dagurinn á morgun ekki til.
Ástin sem í dag fyllti þennan kofa
er eldurinn núna sem fær mig til að loga.
Þennan dag sem á enda er að renna
vil ég lofa, vil ég lofa, vil ég lofa
vil ég lofa, vil ég lofa, vil ég lofa
vil ég lofa, vil ég lofa, vil ég lofa
og þig sem fær mig til að brenna.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





