Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Mb. Rosinn

 

Image
Ísbjarnarblús 1980

Lag: Bubbi Morthens, texti: Tolli

Á netavertíð austanlands
ég fékk mitt fyrsta kikk.
Fullan kassa af séniver
við fengum fyrir slikk.
Við rifum strax af tappana
það þoldi enga bið
heltum oní kappana
að landans drykkjusið.
Æddum svo á dansleikinn
þetta herjans lið
brutum allt og brömluðum
gáfum engu grið.

Í svita, slori og áfengi
við fílum okkur best.
Áhöfnin á Rosanum
sem aldrei edrú sést.

Ég man þar kom að lögga ein
sem þóttist vera stór.
Samt rænulaus og alblóðug
hún heim af dansleik fór.
Er tókum við upp hnífana
og grenjuðum í kór:
Eigum við að opna á ykkur æðarnar
svo fljóti um blóðsjór.
Þeir veinuðu af skelfingu
sem heyrðu þessi hljóð
enda var það ekki löggan ein
sem heim af dansleik fór.

Þegar allir sveitatöffarar
í þessu plássinu,
voru kýldir út úr kofanum
með stofustássinu
á eftir stóðu meyjarnar
í ofboðs hrifningu
slefuðu í fang okkar
á miðju gólfinu.

Við tókum þær og skveruðum
meðan við höfðum nokkurn mátt
síðan við aftur hölluðum
þær sögðu heldur fátt.
Er líða tók á nóttina
og kassinn tómur var
við tókum allir sóttina
og hófum leit að bar.
Brutumst inn til læknisins
og börðum hann í spað
mölvuðum upp hillurnar
og átum pillurnar,
þaðan niður í kaupfélag
í kökudropana
en síðan beint á pósthúsið
í allar kröfurnar.

Í svita, slori og áfengi…
Er löggan kom og sótti okkur
um miðjan næsta dag
við lágum allir steindauðir
við úldið grútarkar.

Í járnum vorum sendir suður,
svona einn og einn
stungið inn á níuna
en það þótti heldur seint.
En kallinn oss með símtali
fékk strax leysta út
það kemur fyrir bestu menn
að missa túr og túr.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.