Lag og texti: Bubbi Morthens
Þeir sögðu við hann: Rektu hana burt
við viljum hana ekki
hversvegna fær hún að fylgja þér?
Svarið var: Ég hjarta hennar þekki.
Við sátum við eldinn, til okkar mælt’ann
og mildin í augum hans brann.
Sá sem drekkur af vörum mínum verður ég
og ég mun sannarlega verða hann.
Hann sagði: Ég hef varpað eldi á heimsbyggðina
vitið að ég vaki uns bálið brennir hallir og gerði
þá við óttuðumst ekki glampann af rómversku sverði.
Ef til vill telur fólk mig friðardúfu
svo fjarri sannleika er það
það veit ekki ég boða sundrung og stríð
ég færi heimsveldi úr stað.
Þeir dagar munu koma þá þið leitið mín
en mig verður hvergi að finna
ég er ljósið sem skín yfir heiminum
sendur á meðal barna sinna.
Sá sem þekkir veröldina hefur fundið hræ eitt
sá sem fundið hefur hræið hefur lagt veröldina að fótum sér
Þetta mælti hann til okkar og ég, María, segi þér.
Vinsældalistar
#4. sæti Tónlist.is - Netlistinn (40. vika 2004) 3. vikur á topp 10
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





