Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Lífið er erfitt

 

Bubbi - Tvíburinn
Tvíburinn 2004

Lag og texti: Bubbi Morthens

Lífið er erfitt, gjaldmælirinn gengur
gamall kóngur og lítill drengur
glata áttum í hafi veruleikans
drottningin stígur döpur sinn dans
meðan trúðurinn tínir upp rykfallið myrkur
töfrarnir horfnir sem hinn forni styrkur.

Sólin er á hvolfi í tjörninni rauðu
eigra um í garðinum hinir lifandi dauðu
krákurnar feigðinni fagnandi taka
með opinn gogginn gírugar vaka
græðgin sem snákur eitrar þitt hjarta
rökkrið að sötra upp ljósið þitt bjarta.

Lífið er erfitt, gjaldmælirinn gengur
tröllin eru komin til að éta þig drengur

Í Armaníbrynju inn í bankann þú æðir
eldur drekans um gullið þitt flæðir
skjöldurinn klofinn kjarkinn að missa
vopn þín bitlaus skrefið var skyssa
sem þú tókst í trú um skjótfenginn auð
það er lygi sem sagt er að tröllin séu dauð.

Skuggar dökkir þeir æða yfir landið
allt er á hvolfi, slitið ættarbandið
athafnaskáldin gömul og góð
en gættu þín á kvöldin þau drekka mannablóð
bros þeirra boða aldrei neinum neitt gott
á flótta leggja hundar með lafandi skott.

Lífið er erfitt og gjaldmælirinn gengur
tröllin eru komin til að éta þig drengur.

Myrkrið ber moldarkeim fyrir vitin
maðkurinn vaknar, það gerir hitinn
nátúran fölnar, fjöllin án ljóma
þú finnur aldrei vinur heiður né sóma
í lyginni þótt enginn annar það viti
iljar þínar brenna, hvaðan kemur þessi hiti.

Lífið er erfitt, gjaldmælirinn gengur
gatan er horfin þér litli drengur
kastalinn brunninn, brunnurinn tómur
vonleysi í auga, veikur þinn rómur
krákurnar komnar tíminn líður
handan hornsins dómarinn bíður.


Vinsældalistar
#8. sæti Tónlist.is - Netlistinn (45. vika 2004) 1. vika á topp 10

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.