Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Tómas hólmgöngukappi

 

Bubbi - Tvíburinn
Tvíburinn 2004

Lag og texti: Bubbi Morthens

Mig dreymdi að Tómas tvíburinn kæmi til mín
talandi um Jesús bróður sinn
að hann yrði að fylgja honum alla leið
ég yfirgefa mun móður og föður minn
og englarnir sungu leið þín verður greið.

Það var um miðjan dag og hitinn fór hækkandi
hjarta mitt þráði eilífan frið
við settumst í skuggann og bróðir minn blíður
mælti: Á morgun Tómas förum við
og englarnir sungu tíminn þinn líður.

Ég vissi að leiðin lá í átt til krossins
lögmálið yrði hann að uppfylla
við vorum eltir fram í svartasta myrkur
þeir sögðu hans orð væri trúvilla
og englarnir sungu trúin er þinn styrkur.

Ég fylgdi mínum bróður allt til enda
einn á krossinum dó hann snauður
Pétur hann fór í felur er haninn gól
og Júdas bróðir minn lá á blóðvelli dauður
og englarnir sungu um herrans sól.

María Magdalena lærisveinn Jesú
leysti hann niður, þvoði hans sár
hún þorði meðan við hinir hlupum flestir í felur
fyrir það hlaut hún blessun um aldir og ár.
Englarnir sungu trúin kærleikann elur.

Báðir vorum smiðir eins og faðir okkar
til Indlands ég fór, höll að smíða
græðarinn vissi, drottinn mælt hafði til mín
Gondoforus konungur mátti ekki bíða
og englarnir sungu mikil verða laun þín.

Ég rak út djöful úr skurðgoði konungs
í frelsarans nafni ég boðaði trú
þeir reistu hús guðs yfir gröfina mína
og yfir fljót efans ég reisti þeim brú.
Og englarnir blésu í lúðrana sína
og englarnir blésu í lúðrana sína.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.