Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Maðurinn er einn

 

Bubbi - Tvíburinn
Tvíburinn 2004

Lag og texti: Bubbi Morthens

Maðurinn trúir hann sé herra móður jarðar
Jörðin er náma sem þarf að skila auð.
Maðurinn hann sveltir börn sinna bræðra
sem dreymir ekki gullið aðeins brauð.

Maðurinn trúir hann sé tæknilega greindur
telur sig inni og veit hvað er svalt.
Maðurinn er tengdur og trúir blint á netið
tilfinningalíf hans er flatt og kalt.

Maðurinn er einn, maðurinn er einn
og veröldin verður minni og minni.

Maðurinn hann telur ástina tímasóun
trúir á kynlífið nakið og hrátt.
Maðurinn leikur guð og grýtir eigið hjarta
glímir við sjálfan sig fínnur enga sátt.

Maðurinn hann trúir á frægðina og frama
friðlaus í neyslunni týnir sjálfum sér.
Maðurinn gekk frá guði götuna breiðu
Guð minn ég bið þig ekki gleyma mér.

Maðurinn er einn, maðurinn er einn
og veröldin verður minni og minni.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.