Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Ástin getur aldrei orðið gömul frétt

Bubbi - Í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís
Í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís 2005

Lag og texti: Bubbi Morthens

Ég vaknaði og var ekki viss um stund
vissi ekki hvort þú hefðir komið á minn fund
með nafnið þitt á vörunum þreyttur ég lá
og innra með mér bærði á sér þessi bláa þrá.

Hafið fyrir utan gluggann minn er grátt
ég geng stundum fjöruna og reyni að finna sátt
tíminn er vinur þinn reyndu að lifa rétt
því ástin getur aldrei orðið gömul frétt.

Ég á engan skjöld ég á ekkert sverð
ég verð bara einmanna þegar þú ferð
ég á engan skjöld ég á ekkert sverð
ég verð bara einmanna þegar þú ferð.

Ég les allar bækur Bob Dylan hlusta á
best er þó að gleyma þegar ljósið fellur frá
forðum gat ég flogið draumum mínum í
nú verð ég að bera þá þunga sem blý.

Stelpan mín hún kemur og dvelur stutta stund
sem lítill strákur bíð ég eftir okkar dýra fund
tíminn er vinur þinn lifðu alltaf rétt
því ástin getur aldrei orðið gömul frétt.

Ég á engan skjöld ég á ekkert sverð...

Tíminn er vinur þinn lærðu að lifa rétt
því ástin getur aldrei orðið gömul frétt.


Vinsældalistar
#7. sæti Tónlist.is - Netlistinn (24. vika 2005) 1. vika á topp 10, 3 vikur á topp 20

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.