Lag og texti: Bubbi Morthens
Það dimmir brátt ég bíð æðrulaus
brosi út í annað, reyni að halda haus.
Það dimmir brátt, dökkur himinn siglir að.
Dagurinn að hverfa, ég hreyfist varla úr stað.
Ég er fastur í myrkri, kaldri sæng.
Manstu engil með brotin væng.
Ísin á hjartað, verð að berjan af.
Ég sigli inn í brimgarðinn, er að fara í kaf.
Fjórir naglar, þrír krossar
þér að blæða út.
Fjórir naglar, þrír krossar
ég að drekka af stút.
Að fyrirgefa, fyndu stað og stund
farðu niður á kné og leiktu hund.
Óttinn er eini sanni vinur minn
trúin á ljósið er veikleiki þinn.
Þú þráðir að finna ljúfan friðinn
var hún þess virði endalaus biðin.
Dauðinn hefur vinan magnað minni
kynlíf getur drepið við fyrstu kynni.
Fjórir naglar, þrír krossar
þér að blæða út.
Fjórir naglar, þrír krossar
ég að drekka af stút.
Vinsældalistar
#4. sæti MBL - Tónlistinn (5.6.2008) 3. vikur á topp 10
#3. sæti Tónlist.is - Netlistinn (25. vika 2008) 3. vikur á topp 10
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





