Lag og texti: Bubbi Morthens
Úti er myrkur og kalt, grasið er hrímótt og grátt.
Gatan ósnert af bílum, hjartað lítið og blátt.
Klukkan er fimm að morgni, ég sit og ég minnist þín.
Máninn er gulur og á himni einmana stjarna skín.
Vindurinn læðist um götur, snjórinn er svartur að sjá.
Gamlar myndir vakna, brjóstið fullt af þrá.
Þú þurftir ekki að fara, öngvan grunaði neitt.
Auðvelt vera vitur eftir á, samt engu geta breytt.
Þegar hamingjusólin hnígur til viðar
og til paradísar fást öngvir miðar
og skuggar langir leggjast yfir bæinn
mundu þá að drottinn gædar þig gegnum daginn.
Æska þín óljós grunur, ferð sem enginn fór í.
Fundarlaun handa pabba og mömmu og guð á bakvið ský.
Veröld þín hrundi, ekkert varð aftur eins og það var.
Við öllum þínum spurningum var aðeins þetta svar.
Vinsældalisti
#3. sæti MBL - Tónlistinn (26.6.2008) 3 vikur á topp 10, 5. vikur á topp 20
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum