Lag og texti: Bubbi Morthens
Það kom eins og ljósið
læddist bara inn.
Fullt af hvítri gleði
Gæfan og draumurinn.
Tær og bjartur morgunn.
Bros þitt undur blítt.
Opin augu friðsæl
upplifa allt sem nýtt.
Lífið er stóra undrið.
Gleðin að gleðja þig.
Óska öllum friðar
sáttur við sjálfan sig.
Orðin skipta máli.
Dagurinn kemur og fer.
Þinn tími óráðin gáta
líkt og tími minn með þér.
Látum því aldrei hjá líða
að leggja í hjartað inn
fallegt orð að kveldi
ástin mín, vinur minn.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





