Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Lennon

 

Bubbi - Fingraför
Fingraför 1983

Lag og texti: Bubbi Morthens 

Þegar ég vaknaði upp í morgun íbúðin var ein rúst.
Mamma fór á taugum, pabbi gaf mér púst.
Nunnurnar hlógu, dýrðlingarnir hlógu með.
Pabbi náði í lækninn sem vildi ekki trúa hvað hafði skeð.

Nágranninn á næstu hæð kveinaði og kvartaði.
Lækkið niður í græjunum, alltaf mikill hávaði.
Við gáfum honum sýru, hann sagðist heita Faró
síðan hoppaði hann útaf fimmtu hæð og flaug uppí móti sól.

Þvottakonan glottir, kveður pabba sig hafa tekið í.
Hún spyr mig ,,viltu prófa“ segist vera loðin og hlý.
Hún segist halda við Drakúla, þau væru að fara í frí til Frans
blóðið væri betra þar hefði hann meiri sjans.

Draumaprinsessan kveður froskinn hafa svikið sig.
Þau hefðu elskast alla nóttina, hann talaði bara um þig.
Vatnaliljurnar skræktu, sögðu að leigan væri of dýr
þetta gæti kannski gengið ef froskarnir væru þrír.

Á mánudag þeir banka á dyrnar, standa penir í röð.
Húsið þitt er fullt af hassi viltu koma með niður á stöð.
Ég læðist í símann, hvísla í lágum róm
þeir eru að hreinsa til í borginni, farðu í felur herra Jón.

Viðarbjöllurnar eru með samfaraorgíu uppí risinu
öll tegund kynlífs er viðruð þar í húsinu.
Meindýraeyðirinn sagði starfi sínu lausu í gær
hann segist vera með bjöllu á föstu sem er í fæði út í bæ.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.