Lag og texti: Bubbi Morthens
Á vængjum frelsis frjáls þú ert.
Þú flýgur út í bláinn.
Þekkja sitt hjarta mest um vert.
Fljúga var alltaf þráin.
Svo svífðu þangað sem vilt þú fara
og ef einhver spyr þá af því bara
skaltu svara og svífa hærra
ég hafði frelsi til að velja.
Á vængjum ástar allt þitt er.
Ástin er eina þráin
sem fær þig til fylgdar hvert sem hún fer
frjálsan og nakinn útí bláinn.
Svo svífðu þangað sem vilt þú fara
og ef einhver spyr þá af því bara
skaltu svara og svífa hærra
ég hafði frelsi til að velja.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
                                        
                    
                        Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.  
                        
                    
                
                    
                        Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
                         Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að. 
                    
                        
                            Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
                            Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
                        
                    
                
                
                    Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
                    Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
                
        



