Lag og texti: Bubbi Morthens
Þeir ákveða hvað er klám
og banna áfengt öl.
En ofbeldi handa börnum er í lagi.
Þeir mata þinn sljóa heila
hugsanir geyma í gám.
Tölvan veit allt um þína hagi.
Orðið ríða hneykslar marga
samt táknar ljúfan hlut.
En kynlíf er ekki ætlað börnum.
Börnin læra að drepa
í gegnum vidíó.
Í heimi hryllings
við dveljum öllum stundum.
Ykkur er nauðgað allt árið
daginn út og inn.
Brosandi segið: Ekkert við því að gera
þið lengið vinnudaginn og borgið reikninginn.
Er það þannig sem þið viljið vera?
Lífið er meira en vinna
fyrir lítinn aur
og rifrildi rétt fyrir svefninn.
Þeir sem ráða sitja um lögin
og ata ykkur saur
í þeirri vissu þið vitið hver er sjeffinn.
Það er tími til kominn
þið heimtið ykkar rétt.
Vaknið upp frá ykkar steinsteyptu gröf.
Meðan þið látið þetta viðgangast
verðið ávallt kúguð stétt
sem lætur blekkjast af einskis nýtum svörum.
Þeir ákveða hvað er klám
og banna áfengt öl.
En ofbeldi handa börnum er í lagi.
Þeir mata þinn sljóa heila
hugsanir geyma í gám.
Og tölvan hún veit allt um þína hagi.
Lagið má finna á eftirtöldum plötum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





