Main Header

Ég trúi á þig

Bubbi, Sólskuggarnir - Ég trúi á þig
Ég trúi á þig (2011)

Lag og texti: Bubbi Morthens

Lítil börn að leika sér
ljósið ofan höfði þér.
Gamalt fólk fuglar á grein
stúlka kyssir ungan svein.

Ég sé fjöllin full af þrá
Ég sé reiðina hopa frá
Ég sé vorið varlega
vitja þín mín fallega.

Vonin vakir þennan dag
Veröldin kallar á þig.
Í höfði mínu söng lítið lag
um leið og þú kvaddir mig.

Ég trúi á kærleikann
ég trúi á börnin smá
ég trúi á þig
ég trúi á sannleikann
og ég trúi á þig.


Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

Please publish modules in offcanvas position.