Main Header

Lukkan og ég

 

Bubbi - Lífið er ljúft
Lífið er ljúft 1993

Lag og texti: Bubbi Morthens

Að vakna og vita
vorið komið er
finna hita frá hendi
um háls á mér
sjá lítinn strák liggja
og ljúft leika sér
það er ekki einleikið
hve lífið er ljúft hér.

Að liggja og leika
látast falla í dá
hlusta á hláturinn
og horfa í augun blá
burra með bílana
báðir keyra á
lífið er yndislegt lukkunni hjá.

Þú mátt vera Batman
bíður kútur mér
sjálfur er ‘ann skrímsli
og skríðandi um hann fer
til baka kemur móður
Mikki refur orðinn er.
Er lífið ekki djollí
ljúft hér?

Ævintýrið lifir enn
segja augun skýr
straumur fer um mig
og straumur sá er hlýr
Með lítinn strák í fanginu
og við lesum ævintýr
það er lygilegt
en lukkan hjá mér býr
það er lygilegt
en lukkan hjá mér býr.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.