Lag og texti: Bubbi Morthens
Ég missti ástina út um gluggann
hún var raunveruleg fyrir mér.
Hún flaug því ég elskaði skuggann
ég elti skuggann í gegnum litað gler.
Í undirgrándinu þeir tala um músík
öskubakkarnir fullir af frösum.
Þeir tala um antíkömersíal svo heví víraða músík
og byltingin dreggjar í hálftómum glösum.
En fyrir þig við brennum kertin í sólinni.
Kertin þau eru tvö.
Eitt fyrir listina, annað fyrir heimskuna
og á hörpu við spilum pönksvítu númer sjö.
Ég hitti anarkista sem vildi máta sporin
en fótspor hans var aðeins of breitt.
Með félögum sínum glottir hann „Bubbi boring”.
Hann mátaði skóna mína og féll,hann stóð of gleitt.
Þú stóðst upp og sagðir: Ég Bubbi fíla þig
eftir allt sem þú gerðir mér og hinum.
Þú talaðir við mig eins og gamlan félaga
en ég get aldrei tekið þér sem einum af mínum vinum.
En fyrir þig við brennum kertin í sólinni.
Kertin þau eru tvö.
Eitt fyrir listina, annað fyrir heimskuna
og á hörpu við spilum pönksvítu númer sjö.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum