Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Sætir strákar

 

Ego - Í mynd
Í mynd 1982

Lag: Ego, texti: Bubbi Morthens

Í dimmri götu með fölhvítt ljós
þar finnur þú enga ást
aðeins snoppufríð andlit sem þrá þitt hrós
og brosandi að þér dást.

Sætir strákar para sig
í stífu leðri með Presley lokk.
Á götuhornum blikka þig
inni á börum spila rokk.

Ódýr hótel með forna frægð
muna tímana tvenna.
Í sætum strákum er engin þægð
sem hanga og engu nenna.

Þú sérð þá rífast eins og mellur í Róm
Þeir öskra, grenja og hlægja.
Snúa sér við með augun tóm
með tungunni varirnar fægja.

Sætir strákar selja sig
fyrir krónur og kreditkort.
Í dimmum portum sjúga þig
draumar sem hverfa á brott.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.