Lag: Bergþór Morthens, Rúnar Erlingsson, texti: Bubbi Morthens
Það eru haldnir fundir
gamlar hrukkur sléttar.
Til að sýna fórnfúsar lundir
í þágu evrópskrar stéttar.
Það er talað um frið.
Friðarhreyfingin erum við.
Þriðji heimurinn uppsker sem hann sáir
hann brennur í afskiptalausu báli.
Það er talað um að þriðja styrjöldin byrji
þá verði alger endalok.
Er nema von að menn spyrji
með lygina uppí kok.
Heimstyrjöldin tók aldrei enda
hún færði sig lítið eitt um set.
Þriðji heimur’ fékk hana senda
pakkaða inní pólitísk gullofið net.
Þeir biðja um frið handa ykkur
sum ykkar í einlægri trú.
Í orðum ykkar felst viss styrkur
samt er keimur orðana súr.
Þið talið um frið í þetta mörg ár
sannleikur bombunnar er sár.
Styrjöldin tók aldrei enda
þriðji heimurinn hýsti hana í 40 ár.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum