Lag: Bubbi Morthens, C. Falk, Texti: Bubbi Morthens
Þú leggjalanga elska
leikurinn gengur enn.
Það sjúka sem er við hann
sífellt bætast við menn.
Sem finna í fanginu mjúka
feigðina blítt sig strjúka.
Allt þetta þykist ég vita
ég þekki yður frá í denn.
Þú brosir blítt mín elska.
Er brosið ætlað mér?
Ég veit að varirnar hreyfast
og vona að ég svari þér.
Orð þín fislétt fjúka útí tómið
falla til jarðar þá vitrast þeim hljómið.
Allt þetta þykist ég vita
og þína leiki eins og er.
Ég vildi þú gætir orðið ég
aðeins í þetta sinn.
Og áttað þig elskan, þú sjálf
ert stóri bömmerinn.
Sem eitrar allt í kringum sig.
Einn daginn gleypir hann líka þig.
Allt þetta þykist ég vita.
Ég þekki huga þinn.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Athugasemd
Lagið er líka til á ensku sem Battlefield of sex og kom fyrst út á smáskífnni Moon in the Gutter (1988) sem var undanfari stóru plötunnar Serbian flower (1988)