Lag og texti: Bubbi Morthens
Í snjónum eru fótspor mín frosin
ég finn ekki leiðina til þín inn
ég þori ekki ástin mín að kalla
ef ég skyldi trufla svefninn þinn.
Ég skrifa í snjóinn ég elska þig
ég skrifa í snjóinn ég elska þig
ég skrifa í snjóinn ég elska þig
ég skrifa í snjó.
Hvítum snjó hús þitt er þakið
að er hrollur djúpt inni í mér.
Innan klæða kalda rós ég geymi
kannski skil ég hana eftir hér.
Tunglið glottir gefur mér illt auga
ég gæti verið kominn inn til þín.
Það skefur, fýkur, fölar slæður dansa
og fylla af snjó öll vit mín.
Ég skrifa í snjóinn ég elska þig
ég skrifa í snjóinn ég elska þig
ég skrifa í snjóinn ég elska þig
ég skrifa í snjó.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





