Lag og texti: Bubbi Morthens
Sem dagur og nótt voru augun grá
opin kvika, full af þrá.
Sem sorgmætt haf var hugur þinn
og hljómurinn ómar, vinur minn.
Þessar sérstöku hendur og hlátur þinn
og hjartað sem ól þér tóninn sinn.
Þetta glott út í annað og ekkert var bannað
og ástfangnir fingur skópu galdurinn.
Þú vaktir með draumum dimmar nætur
meðan dagurinn svaf við þínar fætur.
Sumir fórna öllu til að öðlast þann tón
sem aðeins lifir þegar sálin grætur.
Snilligáfa er aðeins einstökum gefin
angist hennar systir og bróðir hennar efinn
á eftir þér höktu þegar heimurinn beið þín.
Á hamingjunnar braut eru vandrötuð skrefin.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





