Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Þingmannagæla

 

Bubbi - Von
Von 1992

Lag og texti: Bubbi Morthens

Er nokkuð skárra að lifa úti á landi
eða er lömunin betri hér?
Er praktískt að sjúga mjólk úr sandi
er hægt að synda í frjósandi hver?
Þingmaður og svarið er já, já.
Þingmaður og svarið er nei, nei.

Mig langar til að trúa þér
trúa, trúa, trúa.
Eru orð þín ætluð mér
trúa, trúa, trúa.

Er sólin víxill sem vaknar hjá Denna
er vorið misnotað barn?
Er Jónas Hallgríms á himnum að brenna
er Hitler að vefja þar garn?
Þingmaður og svarið er já, já.
Þingmaður og svarið er ne,i nei.

Er helvíti Dantes Íslands óður
allt hafið bleik klósettskál?
Var Neró hinn ljúfi á lýruna góður
hafa lögfræðingar sál?
Þingmaður og svarið er já, já
Þingmaður og svarið er nei, nei.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.