Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Menn að hnýta snörur

 

Bubbi & Megas - Bláir draumar
Bláir draumar 1988

Lag og texti: Bubbi Morthens

Hún vinnur úti eins og tíðkast hér
áhyggjur og fjögur börn, líkt og vera ber.
Karlinn er á sjónum, þénar sama sem ekki neitt
saman herða ólina og engu geta eytt.

Þau heimta engar milljónir, bara mannsæmandi laun
matarskatt í bónus fá og skilja ekki baun.
Þau þekkja bara vinnuna, í víti af henni er nóg.
Vakna til að lifa og aldrei finna ró.

Sjaldan þú heyrir um hryllinginn þann
hengdan úti í bílskúr sinn föður barnið fann
með skilaboð á miða skráð ,,Ég get ei meir“.
Skuldin er hjá mér og þér og á því lifa þeir.

Barnfóstran er vídeó þau vaka fram á kvöld
vita ekki um skuldirnar sem duga í heila öld.
En rifrildin þau heyra og hræðslan smýgur inn
þau híma undir sænginni með náföla kinn.

Sjaldan sérðu uppboðin né andlitin grá
eða augu full af tárum og vonlausri þrá.
Þér þykir það sjálfsagt skrítið að skuldin er hjá oss
skondið er að vita þessu veldur lítill kross.

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.