Lag og texti: Bubbi Morthens
Í tangóinum á tunglið heima
tíminn nemur staðar hjá mér.
Bergmál hárra hæla mig teyma
haltu mér fast eða slepptu mér.
Ég dansa tangó fyrir þig.
Kysstu mig varlega myrkur
mínar varir eru aðeins gler.
Úr faðmi þínum flæðir sá styrkur
sem fær mig til að hvíla inni í þér.
Ég dansa tangó fyrir þig.
Vindurinn hló í hári þínu
hvíslandi í myrkrið orðin sín.
Loforðin héldu á hjarta mínu
hamingjan biðlaði til mín.
Ég dansa tangó fyrir þig.
Í draumum mínum dagarnir fæðast
dagar sem krýndir voru mér.
Meðan veruleikans vofur (að mér) læðast
vekja mig í dansinn með þér.
Ég dansa tangó fyrir þig.
Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta.
Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba.
Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.
Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu.
Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.
Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba.
Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.





