Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Aulaklúbburinn

Lag og texti: Bubbi Morthens og Rúnar Júlíusson

Söngvarinn er dauður og draumarnir farnir
dýrlingur að fæðast með andlit skotið burt.
Þeir sem fóru á undan áttu sama drauminn
í aulaklúbbnum á himnum var ekkert auga þurrt.

Því aulaklúbburinn bíður þín
en þar er enginn gítar og ekkert vín
aðeins frasar og myrkrið svart
aðeins frasar og myrkrið svart.

Að gefast upp er auðvelt setjast aðeins niður
opna síðan munninn og vorkenna sér.
Bryðja blús í pillum og gráta eigin örlög
er það besta sem þú gerir áður en þú leggur af stað.

Því aulaklúbburinn bíður þín
en þar er enginn gítar og ekkert vín
aðeins frasar og myrkrið svart
aðeins frasar og myrkrið svart.

Að klifra upp á toppinn og týna öllum áttum
er tækifæri sem margur aulinn þráir heitt.
Fara þeir sem vilja verði þeim að góðu
veröldin heldur áfram ósnert, óbreytt.

Því aulaklúbburinn bíður þín
en þar er enginn gítar og ekkert vín
aðeins frasar og myrkrið svart
aðeins frasar og myrkrið svart.


Vinsældalistar
#34. sæti DV - Íslenski listinn (24.6.1995)

 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Bubbi og Rúnar - Teika (1995)
GCD - Mýrdalssandur (2002)

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.