Main Header

PLÖTUR

polar bear flare Undir valmyndinni Plötur finnur þú allar plötur Bubba frá upphafi ásamt myndum af plötalbúmum, lista yfir lög og texta. 

LÖG OG TEXTAR

bubbi_og_megas Í gagnagrunninum okkar eru öll lög og textar Bubba. Notaðu leitina til að finna það lag sem þú ert að leita að.

SPJALLTORG

login-min Taktu þátt í umræðunum á spjalltorginu. Athugaðu að þú verður að vera innskráður til að hafa aðgang.

TÍMALÍNA OG MOLAR

3-worlds Undir valmyndinni tímalína er rakin saga Bubba. Undir Molar eru margir skemmtilegir pistlar.
Bylgjan Image

Stál & Hnífur

á Bylgjunni kl. 20:00

öll mánudagskvöld

Pistlar Bubba Image

Sjá Pistla Bubba

HÉR

LAGALEIT

Plötur

Undir rós

Lag og texti: Megas

Droppaðu nojunni vinan
og vertu svolítið meira pós
þú hlítur að fatta hvað ég meina
þó ég mæli undir rós.

Það er kannski fullljóst, það er farið að vitnast
að ég er fallinn hér neðst og dýpst
en það er notalegt hérna niðri
& það er bara nálægt þér sem ég þrífst
já er ekki komið tæm á að þú takir það inn
að ég trjóna hér efst og hæst
& ef þú kemur hér efst til mín
geta allir draumar ræst.

Og ég sem veit stundum ekki vina mín
fyrir víst eða hvort ég er
& kannski er ég bara saga síðan fyrir löngu
& einhver sagði hana honum eða þér
en vá það er satt ég er svo svakalega skotinn
ég verð eins og sigti þegar ég kem auga á þig
ég held að þú gætir þessvegna alveg lesið
þjóðviljann eða eitthvað gegnum mig.

þegar ég hef þig ekki & þú ert hvergi nærri
verð ég eirðarlaus ég finn hvergi ró
ég er eins og á glóðum elds en það lagast
ef ég bara fæ þig það er nóg
já & í vöðluðum sængurvoðum
að vakna
í fanginu á þér
ég er enginn fálki ég veit bara faktíst ekki
hvers framar biðja ber.

Æ ég hef mæðst í mörgu sem meikar aldrei sens
en það væri fánýtt að vera að vera að fárast yfir því
& ég fékk þó altént séns
& þegar svo loks ég ligg niðri í moldinni
þá má líta grafskrift eina
& hún er: næstum því – eða: nema hvað –
eða; nei það mátti reyna.


Vinsældalistar
#8. sæti DV - Rás 2 (23.1.1987) 3. vikur á topp 10

 

Lagið má finna á eftirtöldum útgáfum
Megas - Í góðri trú (1986)

BMK er aðdáendaklúbbur Bubba Morthens.

Stofnaður 06.06.06
Hvernig gerast menn félagar í BMK? 

Please publish modules in offcanvas position.